Kirkjan vill ganga með fólki í gegnum lífið – á gleðistundum jafnt sem á tímum sorgar og áskorana. Hér má finna upplýsingar um þjónustu Ísafjarðarprestakalls og hvernig hægt er að óska eftir þjónustu eða hafa samband við okkur. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að er þér velkomið að senda okkur fyrirspurn.
Skírn
Skírnin er hátíðleg stund í lífi barns og fjölskyldu. Hér má finna upplýsingar um undirbúning og hvernig óskað er eftir skírn.
Ferming
Upplýsingar um fermingarfræðslu, fermingarveturinn og skráningu.
Hjónavígsla
Hjónavígsla er hátíðleg stund í lífi hjónaefna. Hér má finna upplýsingar um undirbúning og hvernig óskað er eftir hjónavígslu.
Útför
Við andlát er að mörgu að hyggja. Prestar okkar veita aðstandendum stuðning og leiðsögn við undirbúning útfarar.
Sálgæsla
Stundum er gott að hafa einhvern til að tala við. Prestar okkar eru til staðar fyrir þau sem vilja leita til þeirra.
Ertu að leita?
Finnur þú ekki það sem þú leitar að? Þér er velkomið að senda okkur fyrirspurn og við höfum samband við þig.