Útför
Við andlát er að mörgu að hyggja og eðlilegt að aðstandendur séu óvissir um næstu skref.
Prestar Ísafjarðarprestakalls eru til staðar fyrir aðstandendur, bæði við dánarbeð og í kjölfar andláts, og veita sálgæslu og aðstoð við undirbúning útfarar.
Aðstandendum er velkomið að hafa beint samband við prest. Þegar samband hefur komist á leiðir presturinn fjölskylduna í gegnum næstu skref og undirbúning athafnarinnar.
Undirbúningur útfarar
Þegar samband hefur komist á milli aðstandenda og prests er fundinn tími til að hittast og ræða undirbúning útfararinnar í ró og næði.
Á fundinum er rætt um hinn látna og ævi hans, fyrirkomulag athafnarinnar, sálma og tónlist og annað sem aðstandendur vilja hafa í huga. Presturinn leiðir aðstandendur í gegnum undirbúninginn og hjálpar til við þau atriði sem þarf að ákveða.
Æviágrip:
Gott er að aðstandendur taki saman helstu æviatriði hins látna fyrir samtalið við prest. Þar má meðal annars hafa í huga uppruna og fjölskyldu, æsku og uppvöxt, nám og störf, maka og börn, áhugamál og annað sem var lýsandi fyrir manneskjuna og líf hennar.
Þetta þarf ekki að vera fullfrágenginn texti. Presturinn vinnur úr upplýsingunum í samráði við aðstandendur.
Vottorð um tilkynningu andláts
Þegar læknir hefur gefið út rafrænt dánarvottorð berst það sjálfkrafa til sýslumanns. Aðstandandi þarf í kjölfarið að tilkynna andlátið til sýslumanns.
Þegar andlátið hefur verið tilkynnt gefur sýslumaður út vottorð um tilkynningu andláts. Vottorðið þarf að afhenda presti áður en útför fer fram.
Útför má ekki fara fram fyrr en prestur hefur fengið vottorðið í hendur.
Kistulagning
Kistulagning er stutt kveðjustund sem fer gjarnan fram sama dag eða daginn fyrir útför. Þar koma nánustu aðstandendur og vinir saman til að kveðja hinn látna áður en kistunni er lokað.
Prestur annast stundina og fyrirkomulag hennar er rætt við aðstandendur. Að jafnaði er kistan opin meðan á kistulagningu stendur.
Útfararathöfnin
Útför í kirkju er guðsþjónusta þar sem hins látna er minnst og hann kvaddur. Aðstandendur og prestur ákveða saman sálma, tónlist og annað fyrirkomulag athafnarinnar.
Prestur og starfsfólk kirkjunnar leiðbeina aðstandendum og þeim sem taka að sér hlutverk við athöfnina. Það er því ekki nauðsynlegt að þekkja fyrirkomulag útfarar fyrirfram.
Hafa samband við prest
Þegar andlát ber að höndum er þér velkomið að hafa beint samband við einhvern presta Ísafjarðarprestakalls. Presturinn leiðir aðstandendur í gegnum undirbúning útfararinnar og aðstoðar við þau atriði sem þarf að ákveða og ganga frá.
Hér fyrir neðan má einnig finna nánari upplýsingar um útför og hagnýt atriði sem tengjast andláti.