Ísafjarðarkirkja
Ísafjarðarkirkja
Flateyrarkirkja
Flateyrarkirkja
Hrafnseyrarkirkja
Hrafnseyrarkirkja
Bænhúsið í Furufirði
Bænhúsið í Furufirði
Eyrarkirkja í Seyðisfirði
Eyrarkirkja í Seyðisfirði
Hólskirkja í Bolungarvík
Hólskirkja í Bolungarvík
Staðarkirkja í Grunnavík
Staðarkirkja í Grunnavík
Unaðsdalskirkja
Unaðsdalskirkja
Þingeyrarkirkja
Þingeyrarkirkja
Staðarkirkja í Súgandafirði
Staðarkirkja í Súgandafirði

Ísafjarðar­prestakall

Ísafjarðarprestakall samanstendur af 13 söfnuðum á norðanverðum Vestfjörðum og nær yfir Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp. Hér má finna upplýsingar um kirkjurnar okkar 25, messur og viðburði, þjónustu kirkjunnar og starfsfólk prestakallsins.

Næstu messur og viðburðir

Messa í Hólskirkju
11. október 2026 kl. 14:00

Messa í Hólskirkju

Hólskirkja Bolungarvík

Séra Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Hólskirkju syngur undir stjórn Guðrúnar B. Magnúsdóttur organista. Verið öll velkomin.

Messa í Flateyrarkirkju
11. október 2026 kl. 14:00

Messa í Flateyrarkirkju

Flateyrarkirkja

Sr. Fjölnir Ásbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari. Jóngunnar Biering Margeirsson leikur undir og leiðir safnaðarsöng. Verði öll hjartanlega velkomin.

🕯️✨ KERTALJÓSAMESSA Í HRAFNSEYRARKIRKJU ✨🕯️
11. október 2026 kl. 20:00

🕯️✨ KERTALJÓSAMESSA Í HRAFNSEYRARKIRKJU ✨🕯️

Hrafnseyri við Arnarfjörð

Hrafnseyrarkirkja er 140 ára á þessu ári og af því tilefni verður boðið til hlýlegrar messu við kertaljós.

Þegar haustmyrkrið leggst yfir og kertaljósin lýsa upp gömlu kirkjuna minnumst við sögu hennar og þeirra fjölmörgu stunda sem þar hafa átt sér stað. Í kirkjunni er hvorki rafmagn né önnur nútímaþægindi – aðeins kyrrð, nánd og hlý birta kertanna. 🕯️

☕ Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi og notalega samveru.

✨ Verið hjartanlega velkomin! ✨

Fréttir

Scroll to Top