Kirkjukórar á Vestfjörðum komu saman til söngs og fræðslu

Laugardaginn 26. september komu félagar úr kirkjukórum á Vestfjörðum saman á Ísafirði til námskeiðs í raddbeitingu, sálmasöng og messusöng. Námskeiðið var skipulagt af Judith Tobin, organista í Ísafjarðarkirkju, og leiðbeinendur komu að sunnan á vegum söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar.

Laufey Helga Geirsdóttir, söngkennari við Tónskóla Þjóðkirkjunnar, sá um raddþjálfun þátttakenda og Arngerður María Árnadóttir, organisti, kórstjóri og tónskáld, kynnti nýja sálma og ýmsar nýjungar í messusöng.

Það gefast ekki oft tækifæri fyrir félaga úr kirkjukórum á svo stóru svæði, ásamt organistum og kórstjórum, að koma saman til að syngja, læra og miðla reynslu. Dagurinn var því kærkomið tækifæri til samveru og söngs og gaf þátttakendum bæði fræðslu og góða innspýtingu fyrir komandi kirkjuár.

Kvenfélag Ísafjarðarkirkju sá vel um þátttakendur og veitti þeim góðar veitingar yfir daginn.

Námskeiðinu lauk með messu þar sem söngurinn fékk að njóta sín og sr. Þorgrímur Daníelsson þjónaði fyrir altari.

Dagurinn var bæði gefandi og ánægjulegur og dýrmætt að fá tækifæri til að efla tengsl kirkjukóranna á Vestfjörðum, syngja saman og sækja nýjan innblástur fyrir starfið fram undan.

Veitingar voru ekki af skornum skammti.
Kvenfélag Ísafjarðarkirkju framreiddi dýrindis veitingar eins og þeirra var von og vísa.
Scroll to Top