Hjónavígsla
Hjónavígsla er hátíðleg stund þar sem tvær manneskjur heita hvor annarri ást og trúnaði og biðja um blessun Guðs.
Hjónavígslur geta verið með ýmsu móti. Sum velja stóra og hátíðlega athöfn í kirkju með fjölskyldu og vinum, en önnur kjósa litla og einfalda athöfn með fáum viðstöddum. Og allt þar á milli er jafn sjálfsagt.
Prestar Ísafjarðarprestakalls aðstoða hjónaefni við að finna þá umgjörð sem hentar þeim og undirbúa athöfnina í samráði við þau.
Hvar getur hjónavígsla farið fram?
Hjónavígsla þarf ekki að fara fram í kirkju. Hægt er að óska eftir hjónavígslu í kirkjum prestakallsins, á heimili, utandyra eða á öðrum stað sem hjónaefnin hafa í huga.
Við reynum eftir fremsta megni að verða við óskum um staðsetningu, svo fremi sem aðstæður, aðgengi og aðrar praktískar forsendur leyfa. Staður og stund eru alltaf ákveðin í samráði við prest.
Athöfnin þarf ekki að vera stór
Það þarf ekki mikið umstang til að ganga í hjónaband í kirkjulegri athöfn. Hjónavígsla getur verið einföld og látlaus athöfn með hjónaefnum og svaramönnum, eða stærri athöfn með gestum, tónlist og hátíðlegri umgjörð. Umfangið ræðst af óskum hjónaefnanna.
Undirbúningur hjónavígslu.
Fyrir hjónavígslu á prestur samtal við hjónaefnin þar sem farið er yfir athöfnina og undirbúning hennar. Þar er meðal annars rætt um framkvæmd athafnarinnar, stað og stund og þær óskir sem hjónaefnin hafa.
Könnunarvottorð
Áður en hjónavígsla getur farið fram þurfa hjónaefni að afla könnunarvottorðs hjá sýslumanni. Með vottorðinu er staðfest að lagaleg skilyrði til hjónavígslu séu uppfyllt.
Hægt er að sækja um könnunarvottorð rafrænt á Ísland.is að uppfylltum skilyrðum fyrir rafræna umsókn. Í umsókninni eru meðal annars skráðar upplýsingar um hjónaefnin og tvo svaramenn.
Könnunarvottorðið þarf að afhenda presti áður en hjónavígsla fer fram. Vottorðið gildir í 30 daga frá útgáfu, þannig að hjónavígsla þarf að fara fram innan þess tíma.
Óska eftir hjónavígslu
Hér getur þú sent inn ósk um hjónavígslu og tilgreint þann stað, dagsetningu og tíma sem þú hefur í huga. Skildu eftir nafn og tengiliðaupplýsingar og veldu þann prest sem þú vilt hafa samband við.
Athugið að innsending beiðninnar er ekki staðfest bókun. Prestur hefur samband eftir að beiðnin berst og staðfestir stað og stund í samráði við hjónaefnin.