Skírn
Skírnin er ein af helgiathöfnum kirkjunnar og markar upphaf kristinnar trúargöngu. Í skírninni er einstaklingurinn tekinn inn í samfélag kirkjunnar og falinn kærleika og umhyggju Guðs.
Hægt er að óska eftir skírn hjá prestum Ísafjarðarprestakalls. Hér má finna upplýsingar um undirbúning skírnar og senda inn ósk um skírn.
Undirbúningur Skírnar
Fyrir skírn á prestur samtal við foreldra eða skírnarþega þar sem farið er yfir athöfnina og undirbúning hennar. Þar gefst einnig tækifæri til að ræða spurningar og sérstakar óskir varðandi skírnina.
Við undirbúning er meðal annars gengið frá nafni skírnarþega, guðforeldrum eða skírnarvottum og stað og stund athafnarinnar.
Hvar getur skírn farið fram?
Skírnir geta farið fram í öllum kirkjum Ísafjarðarprestakalls. Hægt er að skíra í almennri guðsþjónustu eða við sérstaka skírnarathöfn.
Einnig er hægt að óska eftir skírn á heimili eða öðrum stað eftir samkomulagi við prest. Þegar óskað er eftir skírn er hægt að tilgreina ósk um stað, dagsetningu og tíma.
Guðforeldrar - Skírnarvottar
Við skírn eru guðforeldrar eða skírnarvottar viðstaddir athöfnina. Þeir eru að lágmarki tveir og að hámarki fimm.
Við skráningu skírnar þarf að gefa upp nöfn og kennitölur guðforeldra eða skírnarvotta. Ef spurningar vakna um val þeirra er sjálfsagt að ræða það við prest við undirbúning skírnarinnar.
Óska eftir skírn
Hér getur þú sent inn ósk um skírn og tilgreint þann stað, dagsetningu og tíma sem þú hefur í huga. Skildu eftir nafn og tengiliðaupplýsingar og prestur hefur samband til að ræða undirbúninginn og afla þeirra upplýsinga sem þarf vegna skírnarinnar.
Athugið að innsending beiðninnar er ekki staðfest bókun. Prestur staðfestir stað og stund skírnarinnar í samtali við þig.