Innsetningarmessa var haldin í Hólskirkju sunnudaginn 20. september þegar sr. Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir var sett inn í embætti héraðsprests í Vestfjarðaprófastsdæmi, með sérstakar skyldur við Hólssókn. Sr. María Guðrún Ágústsdóttir annaðist innsetninguna og sr. Sveinbjörg prédikaði við messuna.
Prestar Ísafjarðarprestakalls þjónuðu við athöfnina og var messan hátíðleg umgjörð um upphaf þjónustu sr. Sveinbjargar á Vestfjörðum.
Sr. Sveinbjörg kemur til starfa með fjölbreytta reynslu af prestsþjónustu. Hún starfaði áður sem sjúkrahúsprestur við Landspítalann í átta ár.
Meðal kirkjugesta var frú Agnes M. Sigurðardóttir, fyrrverandi biskup Íslands. Hún á sterk tengsl við Vestfirði, en áður en hún tók við biskupsembætti gegndi hún embætti prófasts í Vestfjarðaprófastsdæmi og var sóknarprestur í Bolungarvík.
Við bjóðum sr. Sveinbjörgu hjartanlega velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í þjónustunni fram undan.


