Staðarkirkja í Grunnavík
Saga og upplýsingar
Staðarkirkja í Grunnavík er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1891. Hönnuður hennar var Guðmundur Árnason snikkari. Árið 1932 var forkirkjuturn reistur við vesturstafn kirkjunnar.
Kirkjan stendur á steinhlöðnum sökkli og er klædd bárujárni. Við vesturstafninn er tvískiptur turn og eru bæði kirkju- og turnþök krossreist. Þrír gluggar eru á hvorri hlið kirkjunnar og bogadreginn gluggi er á framhlið turnsins.
Að innan liggur gangur frá framkirkju að kór og bekkir eru beggja vegna hans. Setuloft er yfir meginhluta framkirkjunnar og veggir eru klæddir strikuðum panelborðum. Yfir kirkjuskipinu er borðaklædd hvelfing.
Staðarkirkja stendur í Grunnavík á Hornströndum og er ein þeirra kirkna sem varðveita minningu um byggð og kirkjuhald á svæði sem nú er að mestu komið í eyði.
