Holtskirkja

Holtskirkja

Heimilisfang Holt i Önundarfirði, Holtsvegur, 426 Flateyri
Fjöldi sæta 60
🅿 Bílastæði Kirkjugarður

Saga og upplýsingar

Holtskirkja í Önundarfirði er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1869. Hönnuður hennar var Kristján Vigfússon forsmiður. Árið 1937 var steypt utan um veggi kirkjunnar eftir breytingum Jóns Hagalínssonar trésmiðs og árið 1969 var reist forkirkja úr timbri.

Kirkjan er múrhúðuð og með krossreistu þaki. Upp af vesturstafni rís ferstrendur turn með risþaki. Að innan liggur gangur eftir framkirkjunni með bekkjum beggja vegna og setuloft er yfir fremsta hluta hennar.

Altaristaflan er eftirmynd eftir Brynjólf Þórðarson listmálara frá árinu 1931 af verki Carls Bloch og sýnir Krist blessa lítið barn. Kirkjan á einnig norskan silfurkaleik og patínu frá árinu 1888, sem Hans Ellefsen hvalveiðimaður gaf kirkjunni. Skírnarfonturinn var smíðaður og skorinn út af Ágústi Sigurmundssyni myndskera árið 1964.

Kirkjuklukkur Holtskirkju eru sérstaklega merkar. Báðar eru frá fyrri hluta 16. aldar; sú stærri var steypt árið 1526 og sú minni árið 1527

Scroll to Top