Alþjóðlegur dagur barnsmissis

Dagsetning 14. október 2026
Tími 20:00
Staður Ísafjarðarkirkja

Miðvikudagskvöldið 14. október kl. 20:00 verður helgistund í Ísafjarðarkirkju í tilefni af alþjóðlegum degi barnsmissis.

Við komum saman í kyrrð og minnumst andvana fæddra og látinna barna. Ragna Salóme Þórisdóttir og Anna María Björnsdóttir flytja hugleiðingar, séra Þorgrímur leiðir stundina og ljúf tónlist mun hljóma. Gestum gefst einnig færi á að kveikja á kertum til minningar um börnin.

Að helgistundinni lokinni verður boðið upp á kaffi og hlýlega samveru.

Öll eru hjartanlega velkomin.

Scroll to Top