Sr. Þorgrímur Daníelsson til starfa í Ísafjarðarprestakalli

Við bjóðum sr. Þorgrím Daníelsson hjartanlega velkominn til starfa í Ísafjarðarprestakalli. Hann mun starfa hjá prestakallinu til áramóta í fjarveru sr. Magnúsar.

Sr. Þorgrímur verður með skrifstofu í Ísafjarðarkirkju og mun sinna prestsþjónustu í prestakallinu á þessum tíma.

Hægt er að hafa samband við sr. Þorgrím í síma 893 1804 eða með tölvupósti á dagvar@mi.is.

Við hlökkum til samstarfsins og óskum sr. Þorgrími alls hins besta í störfum sínum með okkur.

Scroll to Top