Þjóðbúningamessa var haldin á Hrafnseyri í gær við hátíðlega og fallega umgjörð. Messan var haldin í samstarfi við Þjóðbúningafélag Íslands og Þjóðbúningafélag Vestfjarða og var lokahluti viðburðarins „Búningurinn í bílinn“.
Um 70 manns sóttu messuna og voru flestir gestanna klæddir íslenskum þjóðbúningum. Þar mátti meðal annars sjá upphluti, peysuföt og íslenska karlbúninga. Fjölbreyttir og glæsilegir búningar settu einstaklega skemmtilegan svip á athöfnina og sköpuðu hátíðlega stemningu í kirkjunni.
Messan var vel heppnuð og fór vel á því að íslenskir þjóðbúningar og menningararfur væru í öndvegi á þessum sögufræga stað.


